apríl 2007

Færslur ritaðar í apríl 2007.

Ofbeldisbrotum fjölgaði hér á landi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, miðað við sama tímabil í fyrra, að sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins.

Flest þessara ofbeldisbrota eiga sér stað um helgar og í miðborg Reykjavíkur. Stefán sagði að víglínan væri við Ingólfsstræti. Mun fleiri brot ættu sér stað vestan Ingólfsstrætis en austan. Þau eiga sér m.ö.o. stað í hjarta miðbæjarins.

Þetta kom fram í máli Stefáns á fundi Samtakanna ‘78 sem fram fór í dag.

Á fundinum sagði Frosti Jónsson, formaður Samtakanna ‘78, að samkvæmt breskum tölum væri lítill hluti af svonefndum hatursglæpum gegn samkynhneigðum kærður til lögreglu. Hann sagði enga ástæðu til að ætla annað en að hið sama ætti við hér á landi.

Þorsteinn M. Jónsson, kenndur við Kók, verður næsti stjórnarformaður Glitnis skv. áreiðanlegum heimildum mínum.

Næsti hluthafafundur verður 30. apríl nk.

E.s: Gaman að sjá að menn tengdir viðskiptalífinu og stjórnmálum eru búnir að taka upp þessa frétt mína á sínu bloggi.

Þess má geta að frétt mín birtist kl. 15.26. Stuttur síðar á sjálfum fréttavef Vísis, þar sem vitnað var í bloggið mitt. Einnig var hún lesin upp á Bylgjunni.

Athygli vekur að færsla Óla Björns er kl. 17.15 og klukkutíma síðar vitnar Eyþór Arnalds í hann.

Skammast menn (bloggarar) sín eitthvað fyrir að vitna í konur sem skúbba?

hvort Siv Friðleifsdóttir og Guðni Ágústsson hafi rifist vegna þeirrar ákvörðunar Jóns Sigurðssonar að skipa Pál Magnússon í stjórn Landsvirkjunar í stað Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar.

Eftir því sem ég kemst næst er það úr lausu lofti gripið að þau hafi rifist um þetta mál. Hvað þá að þau séu komin í hár saman út af því.

Sömuleiðis mætti benda á að varla er Páll Magnússon mikil ógn við Siv Friðleifsdóttur. Hann er jú ekki einu sinni í framboði til þings.

En: að rífast eða ekki rífast. Þarna liggur efinn.

E.s.: Hvað um að fá mynd af þeim Siv og Guðna saman í faðmlögum…svona í stíl við auglýsingar framsóknarmanna í Kraganum.

Við hvað er kirkjan hrædd?

Hvers vegna þorir kirkjan ekki að taka það skref að heimila prestum að annast hjónavígslu samkynhneigðra? Við hvað er kirkjan hrædd?

Ég var að fletta í bók séra Auðar Eirar: Sólin kemur alltaf upp á ný, en þar segir hún meðal annars frá viðbrögðunum við því er hún, guðfræðingurinn, vildi vígjast, fyrst kvenna á Íslandi, til prests.

Hún rifjar upp í bókinni að einn prestur hafi á þeim tíma, 1974, talað um það að vígsla kvenpresta væri andleg kynvilla. Annar talaði um að prestskapur væri ákaflega mikið álag á manneskjuna, og því væri vafamál, að kona sem jafnframt væri móðir, gæti staðið í því mikla stríði, sem starfinu fylgdi.

Eru umræðurnar sem nú eru vegna mögulegrar hjónavígslu samkynhneigðra kannski af sama meiði?

ætla að verja Ísland og jú, hvorki meira né minna, en sjálfstæði Íslendinga, samkvæmt Aftenposten, ætla ég að rifja upp eftirfarandi pistil sem birtist í Krónikunni sálugu í mars síðastliðnum.

Pistillinn birtist í dálki sem heitir: Úr turninum. Hann orðast svo:

“Íslendingar hafa blessunarlega fengið að lifa að mestu óáreittir á sínu norðlæga skeri. Þjóðir heims hafa í gegnum aldirnar séð litla ástæðu til að abbast upp á afkomendur víkinganna ( þótt víkingar hafi haft atvinnu að því að abbast upp á aðrar þjóðir á meðan þeir voru og hétu).

Af öllum þjóðum heims eru einungis tvær sem hafa haft fullveldi Íslands að engu. Hafa tekið hér völdin og drottnað yfir landinu. Undirokað íslensku þjóðina, hindrað viðskipti hennar við aðrar þjóðir, svæft niður þrótt hennar með möðkuðu mjöli og rænt hana lífsbjörginni.

Þetta eru Norðmenn og Danir.

En nú ber svo við að ráðamenn Íslands bregðast við breyttum aðstæðum í varnarmálum landsins. Það gera þeir, að því er virðist, fyrst og fremst með því að taka upp viðræður um samstarf í varnarmálum við tvær grannþjóðir.

Og hvaða grannþjóðir skyldu það vera?

Jú einmitt Norðmenn og Danir. Einu þjóðirnar sem hafa haft fullveldi Íslands að engu.

Getur verið að þetta séu sömu ráðamenn og hafa andæft aðild Íslands að Evrópusambandinu á þeirri forsendu að hún feli í sér óásættanlegt framsal á fullveldi landsins?”