„Það er kannski rétt að benda á að samhengi er á milli tímans og vatnsins, eins og mörg skáld hafa bent á, hvort tveggja rennur í burt og kemur ekki aftur,“ sagði Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í umræðum um vatnalagafrumvarpið á vorþingi 2006.
Hart var tekist á um frumvarpið og eftir langar og strangar umræður var ákveðið að renna málinu í gegnum þingið með því skilyrði að það tæki ekki strax gildi.
Gildistökunni var frestað í fyrra og nú hefur verið upplýst að henni eigi enn og aftur að fresta um ár til viðbótar.
Ég spái því að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra eigi eftir að leggja fram frumvarp á hverju haustþingi út kjörtímabilið um frestun á gildistöku vatnalaganna.
Stjórnarflokkarnir eiga ekkert eftir að ná saman um málið.


Nýleg ummæli