• Forsíða
  • Um höfund

Arkitektúr, skipulag og staðarprýði

blogg á eyjan.is

RSS

Þjóðvegir í þéttbýli-Reynslusögur

26. 4. 2011 - 22:27 | Flokkur: Óflokkað | 15 Ummæli

Að ofan er myndband sem ég fékk sent frá einum lesanda síðunnar.

Myndbandið tengist skýrslu Betri borgarbrags um Miklubrautina sem fjallað var um hér á síðunni fyrr í mánuðinum.

Í myndbandinu eru sagðar reynslusögur af afkastamiklum umferðagötum sem felldar hafa verið niður eða hætt var við að byggja í nokkum borgum í Bandaríkjunum.

Þarna er því haldið fram af hinum færustu mönnum að þær borgir sem ekki hafa þjóðvegi innan sinna marka hafi minni umferðavandamál en hinar.  Greint er frá dæmum þar sem fasteignaverð hefur hækkað og smávöruverslun dafnað við að fella þjóðvegi og afkastamiklar umferðagötur út úr skipulagi borganna.

Því er einnig haldið fram að þegar stórar umferðaæðar eru lagðar niður bitnar það ekki á samgöngum borganna. Því er líka haldið fram að þó hætt sé við að byggja afkastamiklar umferðagötur inni í borgum fer allt betur en ráð var fyrir gert. (Dalbraut, Hlíðarfótur og Fossvogsbraut svo íslensk dæmi séu tekin).

Þetta er skemmtilegt og fróðlegt myndband sem tekur tæpar sex mínútur í spilun. Mögum mun koma margt sem fram kemur á óvart og vekja upp spurningar um stöðuna hér á höfuðborgarsvæðinu.

Hér er slóð að færslum um Miklubrautina og skýrslu Betri borgarbrags sem getið er í upphafi

http://blog.eyjan.is/arkitektur/2011/04/08/miklabraut-thjodvegur-eda-borgargata/#comments

http://blog.eyjan.is/arkitektur/2011/04/14/borgarbragur-a-miklubraut-%E2%80%93-bio/#comments



15 ummæli

  1. 26.4 2011 kl. 22:551    Guðmundur

    Það er einnig margt fróðlegt á vefsíðu samtakanna sem standa að gerð myndarinnar: http://www.streetfilms.org/


  2. 26.4 2011 kl. 23:102    Einar Jóhanns

    Er þetta ekki spurning um hvað kom á undan, eggið eða hænan? Er það ekki viðurkennt að því stærri götur því fleiri bílar? og því minni götur því færri bílar? Ef stóru göturnar á höfuðborgarsvæðinu yrðu minnkaðar mundi ekki byggðin bregðast við því? Mun byggðin ekki þróast í meira sjálbærar einingar? Hvað með að minnka Miklubraut, Sæbraut, Hafnarfjarðarveg, Breiðholtsbraut, Gullinbrú, Reykjanesbraut og fl. Hvernig mundi byggðarmunstrið breytast. Hvaða áhryf hefði það á dreifingu þjónustu? Skemmtilegar pælingar. Hefur gatnaskipulagið kannski verið á villigötum?


  3. 27.4 2011 kl. 00:233    Guðmundur

    Þessi saga frá Seoul í Suður-Kóreu er einnig áhugaverð:
    http://www.grist.org/infrastructure/2011-04-04-seoul-korea-tears-down-an-urban-highway-life-goes-on

    Og hér er umfjöllun um áþekka áætlun í Madrid:
    http://www.landezine.com/index.php/2011/04/madrid-rio-by-west8-urban-design-landscape-architecture/


  4. 27.4 2011 kl. 01:254    Páll Gunnlaugsson

    Held að við þurfum að taka til skoðunar forsendur veghönnunar innanbæjar. Svo það sé sagt, þá hefur „vegahönnun“ verið mjög framarlega á Íslandi; við eigum sumsé fólk sem kann slíkt. Getum við ekki virkjað það til að skoða aðrar leiðir í umferðalausnum og um leið virkja meira þverfaglega samsetta hópa til að taka þátt í þessari vinnu. Vegahönnun gengur út á meira en radíusa, veghalla, burðargetu osfrv. Kannski þarf að hrófla við flæðinu í heild og taka upp tengingar á milli Álftaness og Reykjavíkur, Kársness og Reykjavíkur. Það mætti skoða með opnum huga eðli slíkra tenginga. Einungis almenningsumferð, hjólandi, gangandi, orkunýtin ökutæki osfrv. Allt í einu sæjum kannski við skýrt að Álftanes á auðvitað að sameinast Reykjavík en ekki Garðabæ!


  5. 27.4 2011 kl. 07:255    Hilmar Þór

    Fjallað var um þessa Kársnes-Álftanestengingu sem Páll talar um í þessum pistli:

    http://blog.eyjan.is/arkitektur/2009/11/04/karsnes-vatnsmyrin-midborgin/

    Þessi tenging opnar mikið land og leysir Vatnsmýraradeiluna.


  6. 27.4 2011 kl. 10:516    stefán benediktsson

    Páll er soldið fastur í „vegum“. Verðum að líta á verkefnið. Flutningar á fólki og vörum. Maðurinn eða pakkinn flytur sig ekki sjálfur nema gangandi. Til þess að hann geti notað aðra tækni þurfum við hin að leggja hana til.
    Afkastamiklir almennings flutningar myndu örugglega fara að einhverju marki aðrar leiðir en núverandi gatnakerfi. Það leiðakerfi yrði trúlega þó nokkuð í anda Bredsdorfs, jafnvel þriggja þrepa hvað hraða og magn áhrærir. Seinustu 350 metrarnir yrðu val þess að ganga,hjóla eða láta skutluna sækja sig.
    Skutla er eldra orð yfir unga konu, sem þú ert hrifin af. Kom inn í unglingaslangur á sjötta áratugnum. hefur yfirfærst á létt og lipur farartæki. Eða var það hinsegin.


  7. 27.4 2011 kl. 17:317    Magnús Orri

    Eitt af því sem skiptir höfuðmáli er að dreyfa umferðinni á fleiri og minni leiðir td. eins og tenging Suðurgötu við Álftanes og svo inn til Hafnafjarðar í Engidal. Með því móti myndi td. þörf á mislægum gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrabrautar minnka til muna og álag á Miklubraut/Kringlumýrabraut til Hafnafjarðar minnka til muna. Tenging meðfram sjónum í átt að HR gæti líka létt mikið undir með Hlíðarfæti og Bústaðavegi í þessu sambandi.

    Það þarf að fara að hugsa þetta upp á nýtt – en það að andskotast út í bíla er galið því þeir eru komnir til að vera en eiga auðvitað ekki að vera eini valkosturinn.


  8. 28.4 2011 kl. 10:108    Viðar

    Það er víða pottur brotinn skoðið þetta:
    http://www.andrisnaer.is/2011/04/floknustu-gatnamot-a-islandi/#respond


  9. 28.4 2011 kl. 12:539    Steinarr Kr.

    Suðurgatan eins og hún er í dag er klaufaleg. Frá Hringbraut og í suður er hún tvöföld, þó engin þörf sé á því. Það og að húsin austan við götuna séu talsvert lægri í landslaginu gerir þessa götu að hálfgerðum landamærum á milli hverfa. Síðan er girðing á miðeyjunni og göngu- og hjólreiðastígar sitt hvoru megin við götuna hittast ekki á, sem gerir alla umferð yfir þessa götu flókna og erfiða.

    Þar að auki er gatan ljót, því að frá Hótel Sögu og að Hjarðarhaga eru bara bílastæðaflæmi, sem oft standa auð.


  10. 28.4 2011 kl. 18:2610    Guðmundur

    Hér er fróðlegur pistill sem rímar vel við þessa umræðu:

    http://www.washingtonpost.com/realestate/shaping-the-city-seeking-a-new-template-for-truly-smart-growth/2011/04/15/AFQShSPE_story_1.html


  11. 29.4 2011 kl. 16:1711    Morten Lange

    Þetta eru góðar ábendingar og umræður. Ég velti fyrir mér hvort ekki sé hægt að koma upp einhversskonar samstarfsneti þeirra sem hafa áhuga á þessum málum. Það mætti vera í tengsl við eða undir hatti Samtaka um bíllausan lífsstíl, í samstarfi við fagfélög arkitekta, skipulagsfræðinga og verkfræðinga, eða algjörlega laust og liðugt. Í dag er mjög lítið mál að henda upp tölvupóstlista, án beinna útgjalda.

    Maður sem er mikið að spá í svipaða hluti, Eric Britton heldur úti nokkrum alþjǽoðlegum samvinnunetum og hefur leitað til mín hvort ekki sé einhver áhugi á Íslandi fyrir samvinnu. Aðal-portalinn er líklega
    http://worldstreets.org.
    Hann Eric og hans verkefni er sennilega ekki allra, en það er mjög margt fært fólk og áhugaverða hluti að sjá í netum sem hann hefur sett upp eða er virkur í að halda uppi.

    Annar (hliðar-) vettvangur sem ég sé fyrir mér er að hvetja hvort annað til að bæta inn þessa þekkingu og pælingum á Íslensku Wikipediu. Það er efni sem lífir, á annan hátt en blogg-færslur. ( En að sjálfsögðu krefst ákveðnum aga og þolinmæði að bæta inn efni á Wikipediu. )


  12. 29.4 2011 kl. 22:0112    Helga

    Suðurgatan ljót? Hefur þú aldrei keyrt/hjólað Suðrgötu í suður með Keili beint fram undan? Suðurgata er fallegasta gatan í bænum, að vísu óþarflega breið eftir að menn áttuðu sig loksins á að hægt væri að fara aðra leið í Skerjafjörð. Ég viðurkenni líka að raungreinahroðann til hægri (sjálfsagt eftir einhverja minniháttar verkfræðinga) ætti að rífa sem fyrst. En annars – perfect!


  13. 1.5 2011 kl. 09:3813    Steinarr Kr.

    Ekkert að útsýninu, en við erum sammála um bílastæðin. :-)


  14. 1.5 2011 kl. 11:3014    Hilmar Þór

    „Ég velti fyrir mér hvort ekki sé hægt að koma upp einhversskonar samstarfsneti þeirra sem hafa áhuga á þessum málum“ segir Morten Lange.

    Er ekki bara best að kasta sér yfir málið og setja þessa góðu hugmynd á flot?


  15. 2.5 2011 kl. 20:3315    Morten Lange

    Hilmar : Takk fyrir góðar undirtektir.
    Það sem er fljótlegast að gera og nokkuð skilvirkt sem eitt af verkfærunum er að stofna póstlista. Til dæmis hjá Haśkóla Íslands ( Reiknistofnun háskólans aðstoðar) eða hjá Yahoo eða Google. Allt ókeypis.
    En við þurfum þrennt fyrst, auk „heimilis“:
    * Nokkrar setningar sem skilgreina umræðusviðið og tilgangur
    * Nafn á póstlistann (t.d. borgargotur-l@…. )
    * Stofnhópur sem sýnir smá áhuga á hugmyndinni, helst með tenginga við einstaklinga hjá t.d. Skipulagsstofnun, Skipulags- og byggingarsvið borgarinnar, háskóla, arkitekta- og verkfræðistofur. ( Held að lítill tilgangur sé að stofna lista ef það verða bara umræður „úti horni“ :-)

    Nú er reyndar til listi sem heitir billaus@listar.hi.is, en nafnið og fleiri er kannski pínu takmarkandi ?


Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og fjórum? Svar:

  • Höfundur

      Hilmar Þór Björnsson arkitekt
      Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við.
      Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til höfundar beint er bent á netfangið hilmar@stofunni.is
  • Nýlegar færslur

    • Að forðast gagnrýni
    • Harpa eins árs
    • Spöngin – Endurskoðun skipulags
    • Fleiri gamlar myndir frá Reykjavík
    • Barónsstígur og Laufásvegur-c.a. 1935 og nú
  • Áhugaverðir tenglar

    • Bíllaus Lífsstíll
    • Bjarteyjarsandur
    • Epal
    • Hönnunarmiðstöð Íslands
    • Hönnunarsafn Íslands
  • Erlend hönnunarblogg

    • anArchitecture
    • archdaily
    • Archidose
    • Archinect
  • Erlendar arkitektastofur

    • PLH arkitekter
  • Íslenskar arkitektastofur

    • ARGOS
    • Arkitektar Hjördís & Dennis
    • ASK arkitektar
    • GP ARKITEKTAR
    • Landform
    • Landmótun
    • Landslag
    • Teiknistofa arkitekta, Gylfi og félagar
    • THG ARKITEKTAR
    • Úti og Inni
    • VA ARKITEKTAR
  • Landspítali

    • Hin Hliðin
    • Nýr Landspítali
    • Umræða
  • Tenglar

    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag innanhússarkitekta
    • Félag Íslenskra Landslagsarkitekta
    • Húsfriðunarnefnd
    • Skipulag Ríkisins
  • Færslusafn

    • maí 2012
    • apríl 2012
    • mars 2012
    • febrúar 2012
    • janúar 2012
    • desember 2011
    • nóvember 2011
    • október 2011
    • september 2011
    • ágúst 2011
    • júlí 2011
    • júní 2011
    • maí 2011
    • apríl 2011
    • mars 2011
    • febrúar 2011
    • janúar 2011
    • desember 2010
    • nóvember 2010
    • október 2010
    • september 2010
    • ágúst 2010
    • júlí 2010
    • júní 2010
    • maí 2010
    • apríl 2010
    • mars 2010
    • febrúar 2010
    • janúar 2010
    • desember 2009
    • nóvember 2009
    • október 2009
    • september 2009
    • júlí 2009

Hönnun: MistyLook eftir Sadish.


  • eyjan.is

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Viðskipti
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Innskráning