Nokkrir sem hafa verið orðaðir við framboð til forseta í sumar hafa tekið því vel þegar fjölmiðlar byrja að hringja.
Þetta eru auðvitað mikil pr-mistök – ef þú raunverulega ætlar þér að ná kjöri sem forseti.
Með því skapast offramboð af þér á fyrsta degi.
Því meirihluti þjóðarinnar á enn eftir að heyra og venjast hugmyndinni um þig á Bessastöðum, þegar hún er farin að lesa um áhuga þinn á embættinu.
—–
Að sama skapi er það nær örugg leið til að ná forystu á keppinauta í forsetakjöri, að neita að gefa kost á þér og neita að ræða málið við nokkurn fjölmiðil.
Helst máttu ekki gefa þig fyrr en búið er að ræða kosti þess að fá þig framboð í margar vikur og eftir að þúsundir eða tugþúsundir manna hafa skorað á þig að endurskoða hug þinn.
—–
Íslendingar töldu að Ólafur Ragnar Grímsson hefði í nýársávarpi sínu lýst því yfir að hann sæktist ekki eftir endurkjöri.

En nú bendir ýmislegt til þess að Ólafur Ragnar hafi í raun með því verið að hefja kosningabaráttu sína.
—–
Þögn hans við fjölmiðla, um hvort endurkjör komi til greina, er í fullu samræmi við þessa kenningu.
Því að annað hvort er niðurstaðan:
a) Áætlun hans gengur fullkomlega upp og hann nær miklu forskoti í baráttunni um forsetaembættið.
Um leið og hann sleppur við ásakanir um að þekkja ekki sinn vitjunartíma.
Eða hún verður:
b) Undirskriftirnar verða ekki nógu margar og stemningin fyrir endurkjöri Ólafs Ragnars dvínar.
Þá getur Ólafur líka látið eins og hann hafi aldrei ætlað sér neitt annað en að hætta.
Andrés Jónsson
Ummæli (1)
Leibbi // 21.1 2012 kl. 15:11
Það er öllum heimilt að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta, skil ekki hvað menn geta þvælt með þetta.
Rita ummæli