Andrés Jónsson

blogg á eyjan.is

Stjórnmálamennirnir vandamálið?

27.12 2011 | 13:49 | 8 ummæli

Mælingar sýna að traust á stjórnmálamönnum hefur minnkað og það á sér sínar skýringar.

En eitt af því sem við þurfum að gæta okkur á er að tala stjórnmálin ekki svo mikið niður að enginn með sjálfsvirðingu geti hugsað sér að starfa sem stjórnmálamaður.

Því við þurfum stjórnmálamenn. Þeir eru bráðnauðsynlegir.

Ekki er heldur betra að þeir fáu sem fari í framboð sjái sér þann kost vænstan að úthúða öðrum stjórnmálamönnum og að allt fyllist af ekki-stjórmálamönnum sem keppist við að sverja allt af sér sem fylgir því að vera stjórnmálamaður.

—–

Ástandið er orðið svona í Bandaríkjunum núna og þessi nýjasta kosningaauglýsing Rick Perrys í forkosningum repúblíkana er dæmi um hvers konar öngstræti þeir eru komnir í í þessum popúlisma.

Flokkar: handan sjóndeildarhringsins · Ísland · pólitík · vanmat



Ummæli (8)

  •   Guðmundur Albertsson // 27.12 2011 kl. 14:04

    Það væri nú aldeilis af nógu að taka ef menn ætluðu að ata núverandi innlenda stjórnmálamenn í aur……sagan geymir ótrúleg dæmi um spillingu, peningasóun og almennt rugl

  •   Karl // 28.12 2011 kl. 01:22

    Við þurfum ekki stjórnmálamenn og ennþá síður ekki-stjórnmálamenn eða strengjabrúður eins og þennan Perry. Fullorðið fólk er upp til hópa fullfært um að stjórna sér sjálft betur en þessir trúðar. Stjórnmálamenn hafa eigið „agenda“ og samtryggingarkerfi sem er alls óháð hagsmunum og hugðarefnum kjósendanna sem koma þeim til valda. Þetta er loksins að verða almannavitund út um allan heim. En auðvitað verða spunameistarar stjórnmálamaskínunnar að reyna að smala hjörðinni aftur inn á sína bása svo að leiksýningin geti haldið áfram.

  •   Andrés Jónsson // 28.12 2011 kl. 01:33

    Karl: Mér heyrist þú tala fyrir anarkisma. Hann heillar mig vissulega ekki. En varla er það nóg til þess að uppfylla skilyrði um að vera „spunameistari stjórnmálamaskínunnar“.

  •   Karl // 28.12 2011 kl. 03:07

    Nei, ætli það. Ætlaði ekki að uppnefna neinn sérstaklega. Stjórnmálamenn með hugsjónir eru þó skömminni skárri en þessir „faglegu“ stjórnmálatæknar sem sums staðar hefur verið kallað eftir. Auðvitað væri óskandi að heiðarlegt hugsjónafólk byði sig oftar fram til þessara starfa, en starfið sjálft virðist vera þess eðlis að það laði að sér versta fólkið og það versta í fólki. Vald spillir, algjört vald gjörspillir.

  •   Lúðvík Júlíusson // 28.12 2011 kl. 08:04

    Góðir stjórnmálamenn eru alltaf nauðsynlegir en ekki þeir sem halda að þeir séu upphaf og endir alls. Því miður er Alþingi meira og minna en fullt af síðarnefndu stjórnmálamönnunum.

    Hvernig er hægt að breyta því nema að tala málefnalega um stjórnmál, efnahags- og velferðarmál?

    Nú hafa þingmenn ekki tíma til að kynna sér frumvörp áður en þau eru samþykkt á Alþingi og umfjöllun um þau í nefndnum er alls ekki næg. Vandamálið virðist vera að Alþingismenn eru of fáir, sérstaklega stjórnarþingmenn þegar þriðjundur þeirra eru hættir að starfa á þingi nema til að taka þátt í atkvæðagreiðslum.

  •   Lúðvík Júlíusson // 28.12 2011 kl. 08:09

    ég gleymdi að minnast á að þegar Alþingismenn geta ekki kynnt sér málið þá eru þeir ótrúlega fljótir að grípa til alls konar réttlætinga (t.d. að tími sé ekki nægur til umfjöllunar, aðgerða sér þörf strax, gagnrýni sé töf og töf kosti, að fólk verði að fórna sér og svo framvegis) og popúlisma. Þannig eru það stjórnmálamenn sjálfir sem gengisfella sig sjálfa og þrufa ekki utanaðkomandi aðstoð.

    hér er fjallað um réttlætingu(rationalization):
    http://en.wikipedia.org/wiki/Rationalization_%28sociology%29

  •   Gapandiundrandi // 28.12 2011 kl. 12:53

    Hverju skal svara um stjórmálamenn, sem eru orðnir svo veruleikafirrtir, eftir áratuga rað-innborgun ríkis-verðtryggðra launa og ofur-lífeyris í stíl, að þeim dettur sú geðveiki í hug að halda að forgangsatriðið nú sé að byggja hátækni-monsterið við Hringbrautina? Og pólitíkusarnir í borginni eru svo snælduruglaðir að þeir bara hjóla og hjola og hjóla í hringavitleysunni og þora ekki að hugsa eina einustu heilbrigða jugsun:

    http://eyjan.is/2011/12/28/ekkert-vit-i-ad-kaupa-flatskja-thegar-ekki-er-til-fyrir-mjolk-og-braudi/

  •   Gapandiundrandi // 28.12 2011 kl. 14:07

    Já, hugsun þeirra er sannkölluð … jugsun, eiginlega enn frekar … uxun.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og þremur? Svar: