Andrés Jónsson

blogg á eyjan.is

Viðskiptafréttir

17.12 2011 | 19:27 | Rita ummæli

Þrjár fréttir úr íslensku viðskiptalífi stóðu upp úr í vikunni (og enginn þeirra er um skráningu Haga)

—–

Salan á íslenska snjóbréttafatnaðarframleiðandanum Nikita til Amer Sports (Atomic, Wilson, Salomon) er frábær frétt.

Það hefur vantað að fleiri íslensk sprotafyrirtæki sem notið hafa stuðnings framtaksfjárfesta séu seld.

Núna höfum við tvö nýleg dæmi í Nikita og Latabæ.

—–

Önnur frétt um að íslenskir rekstraraðilar fái það hlutverk að opna og reka IKEA-verslanir í Eystrarsaltsríkjunum var athyglisverð.

Taka verður með í reikninginn að þetta er í bakgarðinum hjá Svíþjóð (þaðan sem IKEA kemur) og Svíar eru ekki alls ókunnir þessum löndum sjálfir.

Það er því ansi merkilegt að þeir telji íslensku sérleyfishafana best til þess fallna til að annast útrás húsgagnarisans í Lettlandi, Litháen og Eistlandi.

Íslenskir bankamenn og nýríkir auðmenn hafa greinilega ekki náð að eyðileggja alveg orðspor íslenskra rekstramanna.

Raunar hafa verið þó nokkur dæmi um að íslenskir sérleyfishafar fyrir stór vörumerki hafi unnið sér inn traust eigenda þeirra og hafi í kjölfarið fengið sérleyfi fyrir ýmsa mun stærri markaði.

Það hlýtur að segja okkur að Íslendingarnir kunni eitthvað fyrir sér í þessum rekstri.

—–

En þessi viðskiptafrétt vakti neikvæðari kenndir í brjósti.

Vissulega hafa erlend lán hækkað og atvinnuhúsnæði fallið eitthvað í verði.

En það hlýtur samt að hafa þurft ansi stóra reiknivillu til að fasteignafélag utan um bensínstöðvar tapi 17,6 milljörðum á einu ári.

Ég vona að þeir sem stilltu upp fjármögnuninni fyrir þetta fasteignafélag  N1 séu ekki hinir sömu og halda utan um eign íslenskra lífeyrissjóða.

Eða kannski var það ennþá verra og það hafi verið sérfræðingar lífeyrissjóðanna sem keyptu skuldabréf gefin út með veði í þessu ofmetna fasteignasafni.

—–

Vonandi tekur sig einhver til og skrifar bók þar sem verstu (löglegu) dæmin um víðáttuvitlausar fjárfestingar á Íslandi fyrir hrun eru tekin saman og skýrð.

Það mætti kannski safna pening til verkefnisins hér.

Flokkar: Ísland · viðskipti



Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og sjö? Svar: