Það hefur komið fram, að það er ákveðið millibilsástand í Samfylkingunni og ekki útlit fyrir að kosið verði milli fólks í æðstu embætti á landsfundinum um helgina.
Það liggur í loftinu að það þarf að endurnýja forystuna.
Þeir sem koma til greina meta það hins vegar sem svo að rétti tíminn til að skipta sé frekar á landsfundi í aðdraganda næstu kosninga.
Það þurfi enn að vera dálítið nýjabrum yfir nýjum leiðtoga flokksins þegar komið er inn í kosningabaráttuna.
—–
Í Viðskiptablaðinu í dag er birt könnun um stuðning við fimm ólíka aðila til formennsku í Samfylkingunni, þar sem Guðbjartur Hannesson fær mjög góða niðurstöðu.
En spurningin, og þeir sem spurt er um, hefur líka væntanlega áhrif á niðurstöðuna.
Það er t.d. bara spurt um eina konu.
Jóhanna Sigurðardóttir fær ekkert sérstaka útkomu í þessari könnun.
Þó verður að taka tillit til þess að flokksmenn Samfylkingarinnar eru að upplagi ekkert sérstaklega foringjahollir.
—–
Það var dálítill urgur í flokknum í kjölfar þess að í ljós kom að ekkert myndi gerast í forystumálunum í haust.
Flestir hafa þó jafnað sig á þessu og horfa fram á við.
Það er ljóst að kapphlaupið um formannsstólinn hefst strax eftir að þessum landsfundi lýkur.
—–
Það er eitthvað að gerast í Samfylkingunni.
Það er þó erfitt að festa hendi á það nákvæmlega hvað það er ennnþá.
Mér finnst svolítið eins og hann sé að slíta barnsskónum sem flokkur. Loksins eftir rúman áratug.
En það er ekki farið að fullu að bera á þessum merkjum út á við ennþá.
—–
Þannig að þetta gæti orðið spennandi landsfundur þrátt fyrir allt.
Sérstaklega verður spennandi að rýna í straumana undir yfirborðinu.
Og fylgjast með myndun bandalaga og strategískum biðleikjum sem leiknir verða á fundinum.
Andrés Jónsson
Ummæli (3)
S. Guðmunds // 20.10 2011 kl. 12:49
Þetta sýnir bara hversu viðkvæmt ástandið í Samfylkingunni í rauninni er.
Forystuleysi balsir nefnilega við og það að enginn treysti sér til að fara á móti núverandi formanni sem fyrir löngu er kominn síðasti söludagur á, sýnir mikið veikleikamerki á Samfylkingunni.
Þessi hræðsla og þetta hugleysi meðal Samfylkingarfólks og bjóða sig ekki fram gegn Jóhönnu, og þannig að skapa ákveðna endurnýjun forystunnar, á eftir að koma flokknum í veruleg vandræði í framtíðinni.
En Jóhanna er mjög þrjósk og því mun hún heldur láta lífið heldur en að láta af völdum.
Enginna innan Samfylkingarinnar þorir að mæla henni í mót eða að bjóða henni byrgin.
Slíkur er áhrifamáttur hennar og járntak sem hún hefur á flokknum.
Aframhaldandi seta Jóhönnu sem formanns, framlengir því og eykur þá kreppu sem Samfylkingin er í, enda er Jóhanna orðin meira til travala heldur en til gagns fyrir Samfylkinguna.
Þegar tími Jóhönnu er endanlega liðinn, mun koma til mikilla átaka og uppgjörs innan Samfylkingarinna sem mun enda með upplausn flokksins.
Rósa // 20.10 2011 kl. 13:38
Rýna í straumana undir yfirborðinu?
Hvar er gagnsæið og hvar eru nýju stjórnmálin?
Mér finnst það að minnsta kosti skrýtinn landsfundur þar sem þarf innmúraða og innvígða til að rýna í straumana undir yfirborðinu.
Hvers vegna ekki að hleypa þeim upp á yfirborðið?
Þetta minnir bara á eitt.
Flokkinn.
Rósa Halldórsdóttir (önnur) // 20.10 2011 kl. 23:32
Sammála nöfnu. Gamlar allaballa og krataklíkur og kafbátar Össurar með líkin í lestinni punta ekki.
Má ég biðja um heiðarleg stjórnmál, opnar umræður og uppgjöf við fortíðina. Burtu með klíku og þöggun, baktjaldamakk og klíkustjórnmál 4-flokksins.
Hef heyrt að það gefist ekki einu sinni tækifæri til skoðanaskipta fyrir almenna þáttakendur á landsfundinum!
Rita ummæli